Jóhann Ársælsson þingmaður Samfylkingarinnar kom í heimsókn á skrifstofu félagsins og átti formaður félagsins um klukkustundar spjall við þingmanninn. Þau mál sem helst báru á góma voru málefni er líta að erlendu vinnuafli og þau undirboð sem er að eiga sér stað á vinnumarkaðinum samhliða erlendu vinnuafli. Að sjálfsögðu ræddi formaðurinn við þingmanninn um málefni HB Granda og þann samdrátt sem orðið hefur á starfssemi fyrirtækisins hér á Akranesi og þær áhyggjur sem félagið hefur af þeim samdrætti.
Jóhann Ársælsson þingmaður Samfylkingarinnar í heimsókn
Jóhann Ársælsson þingmaður Samfylkingarinnar í heimsókn
