Verkalýðsfélag Akraness bíður eftir svari frá Samtökum atvinnulífsins um hvort og þá hvenær þeir geta hafið viðræður um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Fangs. Eins og fram hefur komið hér á heimasíðunni þá hefur stjórn Fangs ákveðið einhliða að fresta viðræðum þar til í haust. Einnig hefur stjórn Fangs tekið ákvörðun um hversu mikið laun starfsmanna skulu hækka. Verkalýðsfélag Akraness vill ítreka það, að það er ekki á valdi stjórnar Fangs að ákveða þetta einhliða. Þessar ákvarðanir verða að vera teknar í samráði við þau stéttarfélög sem fara með samningsumboðið fyrir umrædd störf. Kjarasamningur starfsmanna Fangs rann út 30. nóvember og það mun ekki koma til greina að fresta viðræðum fram á haustið. Verkalýðsfélag Akraness hefur óskað eftir því við Samtök atvinnulífsins að hefja viðræður um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Fangs strax. Ef ekki berst jákvætt svar við þessari beiðni í dag frá Samtökum atvinnulífsins, mun félagið vísa deilunni til ríkissáttasemjara og það seinni partinn í dag.
Kemur í ljós í dag hvort kjaradeila við eigendur Fangs endi hjá ríkissáttasemjara
Kemur í ljós í dag hvort kjaradeila við eigendur Fangs endi hjá ríkissáttasemjara
