Kynning og kosning um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa fór fram í gær. Fundurinn var haldinn í matsal Íslenaska járnblendifélagsins Það fór ekkert á milli mála að starfsmenn Klafa voru nokkuð vel sáttir við nýgerðan samning. Það tókst að tryggja öll helstu kjaraatriðin sem eru í kjarasamningi Íslenska járnblendifélagsins í hinum nýja kjarasamningi Klafa. Einnig fengu starfsmenn Klafa sambærilegar hækkanir á samningstímanum og starfsmenn ÍJ. Eftir að formaður félagsins hafði kynnt samning fór fram kosning um nýgerðan samning. Atkvæðu féllu þannig.
Á kjörskrá voru 26 starfsmenn 19 kusu eða 73%
Já sögðu 16 starfsmenn eða 84.2%
Nei sögðu 3 starfsmenn eða 15.8%
