Þann 17. desember 2008 var undirritaður nýr kjarasamningur milli Sjómannasambands Íslands og Landssambands ísl. útvegsmanna.
Samningurinn verður til umfjöllunar á aðalfundi Sjómannadeildar Verkalýðsfélags Akraness mánudaginn 29. desember nk. Samningurinn er framlenging á síðast gildandi samningi með þeim breytingum sem fram koma í þessum samningi.
Atkvæði um kjarasamninginn verða greidd hjá hverju aðildarfélagi fyrir sig og á atkvæðagreiðslu að ljúka fyrir áramót. Í upphafi næsta árs verða atkvæði síðan talin sameiginlega hjá aðildarfélögum SSÍ um samninginn.
Verði samningurinn samþykktur hækkar kauptrygging og launaliðir frá 1. janúr 2009. Hægt er að nálgast samninginn og kaupgjaldsskrána á heimasíðu Sjómannasambandsins http://www.ssi.is/
