Samningur við íslenska járnblendifélagið var felldur með miklum mun.
Það voru 97 á kjörskrá 82 kusu eða 84.6%
Já sögðu 18 eða 22%
Nei sögðu 63 eða 76.8%
1 var auður eða 1.2%
Nú þegar þessi niðurstaða liggur fyrir. Mun formaður félagsins setja sig í samband við trúnaðartengiliðina og boða til fundar með þeim eins fljót og verða má. það þarf að fá á hreint hvaða atriði starfsmenn vilja laga og leggja mestu áherslu á þegar hafnar verða viðræður við forsvarsmenn Íj aftur. Nú er mjög mikilvægt að samstaða starfsmanna verði góð, reyndar nauðsynlegt.
