Kosning um nýgerða kjarasamninga er nú í fullum gangi og er þátttakan einstaklega góð það sem af er. Kynningarfundurinn sem haldinn var í vikunni á var afar gagnlegur, þátttakan hefði mátt vera betri en það var þó hiti í fundarmönnum og heilmiklar umræður spunnust um innihald samninganna. Þeir sem þess óska geta haft samband við skrifstofu félagsins og fengið kynningu á vinnutíma, eða eftir samkomulagi.
Frestur til að skila kjörseðli er til kl. 12:00 miðvikudaginn 22. janúar og er félagsmönnum bent á að póststimpill gildir ekki því talningu verður lokið fyrir kl. 16:00 þann saman dag. Eru félagsmenn hvattir til að láta í sér heyra og skila atkvæðinu fyrir tilskildan tíma.
