Á fundi með starfsmönnum Norðuráls 14. febrúar var ákveðið að gera könnun hvort starfsmenn vildu frekar vinna á 12 eða 8 tíma vöktum. Talningu lauk rétt í þessu og niðurstaðan er nokkuð skýr. Á kjörskrá voru 112, það voru 88 starfsmenn sem greiddu atkvæði eða, 78.6% 58 starfsmenn vildu 12 tíma vaktakerfi eða 66%, 28 starfsmenn vildu 8 tíma vaktakerfi eða 32%, og 2 seðlar voru ógildir eða 2%. Þessi könnun gerði ráð fyrir því að fimmta vakthópnum verði bætt við. Vilji meirihluta starfsmanna er orðin skýr og mun samninganefnd stéttarfélaganna haga vinnu sinni eftir vilja starfsmanna.
