Kristín Njálsdóttir verkefnisstjóri Landsmenntar kom í heimsókn á skrifstofu félagsins rétt fyrir helgi. Kristín fór nokkuð ítarlega yfir með starfsmönnum Verkalýðsfélags Akraness hvernig starfsemi Landsmenntar væri háttað. Einnig benti hún á mikilvægi þess að stéttarfélögin nýti sér sjóðinn fyrir félagsmenn sína. Ekki mun standa á Verkalýðsfélagi Akraness hvað það varðar, því nú þegar hefur félagið staðið nýlega fyrir námskeiði fyrir starfsmenn sjúkrahús Akraness. Einnig er félagið að skoða hvort ekki sé möguleiki á að halda námskeið fyrir lesblinda. En félagið telur mikla þörf fyrir slíku námskeiði
Kristín Njálsdóttir verkefnisstjóri Landsmenntar í heimsókn á skrifstofu félagsins
Kristín Njálsdóttir verkefnisstjóri Landsmenntar í heimsókn á skrifstofu félagsins
