Kröfugerð SGS klár

Kröfugerð SGS klár

Kröfugerð SGS klár

Formenn Starfsgreinasambands Íslands hafa gengið endanlega frá kröfugerðinni fyrir komandi kjarasamninga á hinum almenna vinnumarkaði.  Kröfugerðin verður afhent forsvarsmönnum Samtaka atvinnulífsins næsta miðvikudag og á þeirri forsendu er ekki hægt að upplýsa um innihald kröfugerðarinnar fyrr en búið verður að afhenda SA kröfurnar.

Formaður mun boða til stjórnar- og trúnaðarráðsfundar í næstu viku þar sem hann mun fara ítarlega yfir kröfugerðina með trúnaðarráðinu.  Einnig mun helstu áherslum í kröfugerðinni verða gerð góð skil hér á heimasíðunni á næsta miðvikudag.

Á formannafundinum í dag ríkti mikill kraftur og samstaða  fyrir komandi kjarasamninga, samstaða aðildarfélaga SGS er algjört lykilatriði ef árangur á að nást í komandi kjarasamningum.

Viðræður á milli Samtaka atvinnulífsins og Starfsgreinasambandsins mun væntanlega hefjast að fullu fljótlega eftir að SGS hefur afhent kröfugerðina.  Vonandi mun takast að ganga frá nýjum kjarasamningi fyrir áramót en þá rennur núverandi samningur út.

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.