Samningafundur var haldinn í dag vegna kjarasamnings Norðuráls. Til umræðu á þessum fundi voru tvö mál þ.e gildissviðið, eins fóru menn lítillega yfir breytingu á vaktarfyrirkomulagi starfsmanna. Í lok fundarins lögðu stéttarfélögin og trúnaðarmenn NA fram kröfur sínar og gerðu forsvarsmönnum Norðuráls grein fyrir þeim.
Næsti fundur verður fimmtudaginn 25. nóvember, á þeim fundi munu forsvarsmenn Norðuráls leggja fram sínar kröfur.
