Í dag 24. október verður skrifstofa Verkalýðsfélags Akraness lokað klukkan 14:00 í tilefni af kvennafrídeginum. Eins og allir vita Þá er kvennafrídagurinn – dagurinn þar sem konur meta árangur jafnréttisbaráttunnar og brýna sig til frekari baráttu. Kynbundinn launamunur á vinnumarkaði er því miður bláköld staðreynd og er samfélagslegt mein sem verður að vinna bug á.
Það liggur fyrir að meðal atvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðal atvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri meðaltal atvinnutekna. Samkvæmt því eru konur búnar að vinna fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38.
Verkalýðsfélags Akraness hvetur konur til að taka þátt í því að ganga út á slaginu 14:38 og sækja útifundi og viðburði um allt land í tilefni dagsins. Íslenskar konur hafa vakið verðskuldaða athygli um allan heim vegna baráttugleði og skilyrðislausrar kröfu um jafnrétti en baráttunni en hvergi nærri lokið. Stöndum saman og útrýmum birtingamyndum misréttis!
