Vegna nýs kjarasamnings við Samband íslenskra sveitarfélaga boðar Verkalýðsfélag Akraness þá félagsmenn sína sem starfa hjá sveitarfélögum til kynningafundar á Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11 þriðjudaginn 19. júlí kl. 18:00.
Eftir kynninguna hefst kosning um samninginn og geta fundarmenn kosið á staðnum. Einnig verður hægt að kjósa á skrifstofu félagsins til kl. 16:00 fimmtudaginn 21. júlí.
Þeir félagar sem starfa eftir samningnum eru eindregið hvattir til að mæta.
