Ríflega þriðjungur eða 35% þeirra sem eru í launaðri vinnu hafa lent í því að laun eða starfshlutfall hefur verið skert frá hruni bankanna í október. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem Capacent Gallup gerði fyrir ASÍ í júní.
Flestir eða rúmlega 18% hafa lent í launalækkun, hjá 9% hefur vinnutími verið styttur og 8% hafa orðið fyrir annarskonar skerðingu. Þetta er mikil aukning frá því í desember 2008 þegar 21% launafólks hafði orðið fyrir í slíkri skerðingu.
Mun fleiri karlar en konur hafa lent í skerðingu launa og/eða starfshlutfalls og þá vekur athygli að 40% iðnaðarmanna hafa orðið fyrir því að laun hafa verið lækkuð eða vinnutími styttur. Þá hafa þeir sem eru með laun yfir 550 þúsund á mánuði frekar lent í launalækkun en þeir sem hafa lægri laun. Nákvæmt niðurbrot svara við spurningu um skerðingu launa og starfshlutfalls má sjá hér.
