Grunnlaun verkamanna sem starfa hjá Elkem hækka með hæfnisálagi að meðaltali um 48.463 kr. frá 1. Janúar 2023
En heildarlaun ofngæslumanna munu hækka um 80.967 kr. að meðaltali á mánuði.
Einnig er rétt að geta þess að orlofs- og desemberuppbætur fara úr 244.896 kr. í 273.622 kr. hvor fyrir sig og er sú hækkun 28.726 kr. eða samtals 57.452 kr.
Rétt er að geta þess að þetta er hækkun sem nemur 11,74% en þessar hækkanir eru í samræmi við kjarasamning sem gerður var 1. Janúar 2020 og rennur hann út í árslok 2024
