Í mars á síðasta ári gerði Verkalýðsfélag Akraness tímamótasamning við Norðurál á Grundartanga en í þeim samningi var samið um að tengja launabreytingar starfsmanna við hækkun launavísitölunnar. Samningurinn byggðist á því að upphafshækkunin var 6% og auk þess var samið um að starfsmenn fengju á nýjan leik hækkun samkvæmt hækkun launavísitölu frá desember 2014 til júní 2015 og reyndist sú hækkun vera 4,25%. Næsta hækkun var frá júlí 2015 til desember 2015 og á þessu 6 mánaða tímabili munu starfsmenn núna fá hækkun frá og með 1. janúar um 4,703%.
Þetta þýðir að á þessu eina ári frá því að Verkalýðsfélag Akraness gerði kjarasamning við Norðurál þá hafa laun starfsmanna hækkað um tæp 16%. Það er ekki bara að launin hafi hækkað um 16% heldur fengu starfsmenn 300.000 kr. eingreiðslu samhliða kjarasamningnum í mars í fyrra. Á þessu eina ári hafa starfsmenn á vöktum í kerskála því hækkað með öllu um frá tæpum 72.000 kr. upp í 86.000 kr. á mánuði.
Heildarlaun byrjanda í Norðuráli á 12 tíma vöktum í kerskála fyrir 182 tíma á mánuði eru núna komin upp í 525.940 kr. og starfsmaður sem er með lengsta starfsaldurinn er kominn upp í tæpar 633.000 kr. Það er sorglegt til þess að vita að á sama tíma og þessi kjarasamningur náðist til handa starfsmanna Norðuráls þá hefur ekkert gengið að semja við Alcan í Straumsvík en samningur Norðuráls rann út á sama tíma og samningur Alcan. Verkalýðsfélag Akraness getur ekki neitt annað en sent starfsmönnum Alcan í Straumsvík baráttukveðjur í því að ná fram í það minnsta sambærilegum launahækkunum og náðust í Norðuráli en það er hinsvegar sorglegt til þess að vita að samninganefnd Alþýðusambands Íslands skuli hafa skilið starfsmenn Alcan eftir kjarasamningslausa þegar endurskoðun kjarasamninga fór fram.
