Stéttarfélög innan Starfsgreinasambands Íslands hafa að undanförnu verið að gera samburð á launum hjá vinnuskólabörnum sem starfa hjá sveitarfélögum vítt og breitt um landið.
Verkalýðsfélag Akraness gerði lauslega könnun á þeim launum sem 14, 15 og 16 ára börn og unglingar fá fyrir vinnuframlag sitt hjá Akraneskaupstað samanber unglinga hjá öðrum sveitarfélögum. Fram kemur í þessum könnunum að umtalsverður munur virðist vera þar á og ekki virðast vera sömu viðmiðanir þegar þessi laun eru reiknuð.
Við samanburð kemur ýmislegt fróðlegt í ljós, sérstaklega þegar stór sveitarfélög á borð við Reykjavík, Akureyri og Akranes eru borin saman við sveitarfélög á landsbyggðinni eins og má sjá í könnuninni. Vestfirsk sveitarfélög og sveitarfélög á Austurlandi koma almennt vel út í þessum samanburðartölum.
Mesta athygli hlýtur að vekja hve lág laun vinnuskólabarna eru hjá svo vel stæðum sveitarfélögum eins Reykjavík, Akureyri og Akranesi saman borið við þau sveitarfélög sem greiða hæstu launin.
16 ára unglingur sem starfar í vinnuskólanum hjá Ísafjarðabæ er með 702,16 kr á tímann en 16 ára unglingur sem starfar í vinnuskólanum hjá Akraneskaupstað er með 538 kr á tímann og munar hér 164 kr á tímann eða 30,5%.
Hægt er að skoða samanburðinn með því að smella á meira.
Til að finna út hlutfall af launum þá var miðað við kjarasamning sveitafélaga og SGS launaflokkur 115 - 1 þrep, en þar eru grunnlaun kr. 126.857 ,- og hlutfall dagvinnu er 0.615% eða kr. 780.17 pr/klst.
Eftirfarandi samanburður hefur verið gerður á launum ungmenna sem starfa hjá sveitarfélögum í vinnuskólum vítt og breitt um landið
Akranes
1992 -16 ára 538 kr = 68,9%
1993- 15 ára 405 kr = 51,9%
1994- 14 ára 361 kr = 46,2%
meðalt. 55,6 %
Takmarkað við 7 klst. á dag.
Vestfirðir
Ísafjörður.
1992 -16 ára 702,16 kr = 90,0%
1993- 15 ára 585,13 kr = 75,0%
1994- 14 ára 507,11 kr = 65,0%
meðalt. 75,0 %
Takmarkað við 6 klst. á dag.
Súðavík.
1992 -16 ára 702,16 kr = 90,0%
1993- 15 ára 585,13 kr = 75,0%
1994- 14 ára 507,11 kr = 65,0%
meðalt. 75,0 %
Vesturbyggð
1992 -16 ára 735,-kr = 94,2%
1993- 15 ára 537,-kr = 73,4%
1994- 14 ára 422,-kr = 54,0%
meðalt. 73,9%
Tálknafjörður
1992 -16 ára 735,-kr = 94,2%
1993- 15 ára 537,-kr = 73,4%
1994- 14 ára 422,-kr = 54,0%
meðalt. 73,9%
Bolungavík
1992 -16 ára 585,-kr = 75,0%
1993- 15 ára 507,-kr = 65,0%
1994- 14 ára 430,-kr = 55,1%
meðalt. 65,0%
Strandabyggð
1992 -16 ára 493,-kr = 63,2%
1993- 15 ára 415,-kr = 53,2%
1994- 14 ára 386,-kr = 49,5%
meðalt. 55,3%
Reykhólar
1992 -16 ára 503,-kr = 64,5%
1993- 15 ára 383,-kr = 49,1%
1994- 14 ára 341,-kr = 43,7%
meðalt. 52,4%
Þeir sem vinna með sláttuorf eru á 16 ára taxta.
Austurland
Fjarðabyggð
1992 -16 ára 705,72 kr = 90,5%
1993- 15 ára 557,15 kr = 71,4%
1994- 14 ára 482,86 kr = 61,9%
meðalt. 74,6%
Seyðisfjörður
1992 -16 ára 632,-kr = 81,0%
1993- 15 ára 527,-kr = 67,5%
1994- 14 ára 457,-kr = 58,6%
meðalt. 69,0%
Höfn
1992 -16 ára 638,60 kr = 81,8%
1993- 15 ára 504,16 kr = 64,6%
1994- 14 ára 436,94 kr = 56,0%
meðalt. 67,5%
Eyjafjarðarsvæðið
Dalvík
1992 -16 ára 623,31 kr = 79,9%
1993- 15 ára 456,51 kr = 58,5%
1994- 14 ára 389,79 kr = 50,0%
meðalt. 62,8%
Akureyri
1992 -16 ára 489,-kr = 62,7%
1993- 15 ára 410,-kr = 52,5%
1994- 14 ára 359,-kr = 46,0%
meðalt. 53,7%
Fjallabyggð
1992 -16 ára 529-kr = 67,8%
1993- 15 ára 381,-kr = 48,8%
1994- 14 ára 327,-kr = 41,9%
meðalt. 52,8%
Reykjavík
1992 -16 ára 486,-kr = 62,3%
1993- 15 ára 366,-kr = 46,9%
1994- 14 ára 325,-kr = 41,6%
meðalt. 50,3%
Munur á hæsta og lægsta taxta 16 ára
kr. 216,16 eða 44,5%
Munur á hæsta og lægsta taxta 15 ára
kr. 219,13 eða 59,9%
Munur á hæsta og lægsta taxta 14 ára
kr. 182,11 eða 56,0%
