Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness hækka almennt um 3,25% þann 1. febrúar 2013 auk þess sem reiknitölur og föst álög hækka um 3,25%, en þó ekki lægra en um 9 kr. Athygli er vakin á því að almennir kauptaxtar hækka hins vegar um ákveðna upphæð kr. 11.000,-. Þá verða lágmarkstekjur fyrir fullt starf kr. 204.000,- á mánuði. Unnið er að því að setja nýju taxtana inn á heimasíðu stéttarfélaganna.
Einnig munu laun starfsmanna Elkem Ísland og Klafa hækka frá og með 1. febrúar nk. um 3%. En laun starfsmanna Norðuráls hækkuðu frá 1. janúar um 3,25% en hægt er að nálgast launataxtana fyrir stóriðjunar hér á heimasíðunni undir kjaramál.
Hér má sjá kauptaxta sem gilda fyrir þá sem vinna eftir kjarasamningi Verkalýðsfélags Akraness á hinum almenna vinnumarkaði og Samtaka atvinnulífsins. Kauptaxtana má nálgast hér.
