Launahækkanir frá 1.1 2005 í þeim kjarasamningum sem félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness eiga aðild að eru eftirfarandi:
Samkvæmt eftirtöldu eru launahækkanir frá 1.1. 2005 í kjarasamningum sem Verkalýðsfélag Akraness á aðild að.
-
Kjarasamningur SGS og SA launahækkun 1.1.2005 3,0%
-
Kjarasamningur SGS og ríkisins 3,0%
-
Kjarasamningur LÍV og SA 3,0%
-
Kjarasamningur Samiðnar og SA 3,0%
-
Kjarasamningur SGS og launanefndar Sv.félaga 1,75%
Þá hækkar framlag atvinnurekenda í samtryggingarlífeyrissjóði frá 1. janúar 2005 í 7,0% í kjarasamningi SGS og SA, LÍV og SA og og jafnframt fellur niður skylda til að greiða 1,0% fast í séreignasjóð til þeirra starfsmanna sem greiða ekki viðbótarframlag í lífeyrissjóð ( sameignar eða séreignarsjóð)
Framlag starfsmanna í samtryggingarsjóði verður óbreytt 4,0%
Í samningi SGS og ríkisins hækkar mótframlag vinnuveitanda í lífeyrissjóð frá 1. janúar 2005 í 9,0%
Framlag starfsmanns verður óbreytt 4,0%
Í samningi SGS og launanefndar Sv.félaga hækkar mótframlag vinnuveitanda í lífeyrissjóð frá 1. janúar 2005 í 10,5 %
Framlag starfsmanns verður 5,0%
