Þann 1. júní hækkuðu laun hjá félagsmönnum Verkalýðsfélags Akraness sem vinna á hinum almenna vinnumarkaði. Um er að ræða hækkanir sem upphaflega áttu að koma til framkvæmda 1. janúar síðastliðinn en var frestað í tengslum við gerð stöðugleikasáttmálans á síðasta ári. Þessari hækkanir munu gilda út samningstímann sem er í flestum tilfellum til 30. nóvember 2010.
Rétt er að geta þess að fjölmörg fyrirtæki á félagssvæði VLFA komu með allar sínar launahækkanir eins og samningurinn frá 17. febrúar 2008 kvað á um. Þau fyrirtæki sem frestuðu ekki launahækkunum þurfa eðlimálsins samkvæmt ekki að koma með taxtahækkanir núna enda voru þau búin að hækka laun sinna starfsmanna.
Hækkanir lágmarkstaxta nema almennt kr. 6.500,- en laun allra sem eru við störf á almenna vinnumarkaðnum hækka um a.m.k. 2,5%. Launataxtar hjá ríki og sveitarfélögum hækka einnig þann 1. júní en þær hækkanir koma fyrst og fremst á lægri taxtana. Hæstu launataxtar ríkis og sveitarfélaga taka ekki hækkunum að þessu sinni.
Þann 1. júní hækka einnig lágmarkstekjur sem greiða má fyrir fullt starf en þær verða kr. 165.000,- á mánuði. Það á við um alla launþegar sem orðnir eru 18 ára og hafa starfað a.m.k. fjóra mánuði samfellt hjá sama fyrirtæki.
Yfirlit um launahækkanir:
Almennt verkafólk, verslunarfólk, starfsfólk veitinga- og gistihúsa, bifreiðastjórar, aðstoðarmenn í iðnaðarstörfum, iðnverkafólk og aðrir á almennum vinnumarkaði, launataxtar hækka um kr. 6.500,-
Iðnaðarmenn án sveinsprófs, launataxtar hækka um kr. 9.450,-
Skrifstofufólk og iðnaðarmenn, launataxtar hækka um kr. 10.500,-
Laun þeirra sem fá greitt umfram kauptaxta hækka um 2,5%.
Kauptaxtar frá 1. júní
Laun skv. kjarasamningi VLFA og Samtaka atvinnulífsins sem starfa á almennum markaði frá 1. júní 2010.
Laun skv. kjarasamningi VLFA og Samtaka atvinnulífsins sem starfa á veitinga- og gistihúsum frá 1. júní 2010.
Laun skv. kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands og ríkisins frá 1. júní 2010.
Laun skv. kjarasamningi Samiðnar og Samtaka atvinnulífsins frá 1. júní 2010.
