Samkvæmt núgildandi kjarasamningi SGS og Samtaka Atvinnulífsins hækka laun þann 1. janúar 2025. Kauptaxtar hækka þá um 5,6% en 23.750 kr. að lágmarki en laun þeirra sem ekki eru á taxtalaunum, heldur almennum mánaðarlaunum, hækka um 3,5% en þó að lágmarki um 23.750 kr.
Til nánari útskýringar þá hækka mánaðarlaun sem eru yfir 678.586 kr. um 3,5%, en laun sem eru undir 678.586 kr., en yfir lágmarkstaxta kjarasamnings, hækka um 23.750 kr. á mánuði. Þess þarf þó að gæta að laun séu eftir breytinguna að lágmarki jafngóð og skv. kauptaxta kjarasamnings. Með almennum mánaðarlaunum er átt við föst mánaðarlaun fyrir dagvinnu.
Þá hækka kjaratengdir liðir samningsins um 3,5% frá sömu dagsetningu.
Starfsgreinasambandið hefur gefið út nýja kauptaxta vegna starfa á almennum vinnumarkaði þar sem hægt er að sjá hvernig mismunandi launaliðir hækka út frá launaflokkum og starfsaldri.
SGS vill hvetja félagsmenn að fylgjast vel með að umsamdar launahækkanir skili sér inn á launareikninga og birtist með réttum hætti á launaseðli janúarmánaðar. Jafnframt eru félagsmenn hvattir til að ganga úr skugga um hvort desemberuppbót hafi skilað sér til þeirra með réttum hætti, en hana átti að greiða út í síðasta lagi 15. desember síðastliðinn. Ef einhverjar spurningar vakna eru félagsmenn hvattir til að hafa samband við sitt stéttarfélag.
Einnig er vert að benda á reiknivél þar sem sjá má yfirlit yfir launahækkanir á samningstímanum, bæði út frá kauptöxtum og almennum launum.
Þá vill sambandið minna á að samkvæmt kjarasamningi SGS og SA þá á starfsfólk rétt á viðtali við yfirmann einu sinni á ári um störf sín, þ.m.t. frammistöðu og markmið og hugsanlegar breytingar á starfskjörum. Óski starfsmaður eftir viðtali skal það veitt innan tveggja mánaða og liggi niðurstaða þess fyrir innan mánaðar.
Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandi Íslands, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, hefur undirritað samkomulag við Samtök atvinnulífsins um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Niðurstaðan tryggir áframhaldandi gildi samninganna og felur í sér mikilvægar aðgerðir til að verja kjör launafólks, styrkja réttindi þess og skapa skilyrði fyrir lækkun verðbólgu og vaxta.
Verkalýðsfélag Akraness hélt á dögunum tveggja daga námskeið fyrir trúnaðarmenn félagsins. Alls sátu 16 trúnaðarmenn, vítt og breitt af félagssvæði VLFA, námskeiðið sem var í umsjón Félagsmálaskóla alþýðu.