Starfskonur á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness munu leggja niður vinnu í dag kl 14:25 í tilefni af Kvennafrídeginum og um leið mótmæla því misrétti sem konur eru beittar víðsvegar í íslensku samfélagi.
Stjórn Verkalýðsfélags Akraness skorar á allar konur sem tök hafa á að leggja niður störf kl 14:25 í dag og mótmæla þessu misrétti gagnvart konum.
