Mikið líf er nú í kringum loðnuvinnsluna hér á Akranesi. Töluverð loðna hefur komið til bræðslu í síldarbræðslunni og útlitið bara nokkuð gott. Afurðaverð á fiskimjöli er að sögn þeirra sem til þekkja í sögulegu hámarki.
Formaður félagsins fór og hitti starfsmenn síldarbræðslunnar í gær og voru þeir að vonum nokkuð kappakátir með það að töluvert af loðnu er að berast til verksmiðjunnar hér á Akranesi til bræðslu.
Hrognataka hófst einnig hér á Akranesi í gær og fór formaður félagsins og tók púlsinn á þeim starfsmönnum sem voru að vinna við hrognatökuna í gær.
Að sögn starfsmanna er unnið á 8 tíma vöktum allan sólarhringinn og hafa um 40 manns atvinnu af hrognatökunni. Það er alveg ljóst að hér getur verið um töluvert uppgrip fyrir starfsmenn á meðan á vertíðinni stendur.
Þau skip sem landað hafa hér á Akranesi á yfirstandandi loðnuvertíð eru eftirfarandi:
| Faxi Re landaði 10. febrúar | 1.131 tonni í bræðslu |
| Sunnubergið landaði 14. febrúar | 1.309 tonnum til bræðslu |
| Víkingur Ak landaði 15. febrúar | 1.348 tonnum til bræðslu |
| Sunnubergið landaði 16. febrúar | 1.300 tonnum til hrognatöku |
| Faxi landaði 17. febrúar | 1.100 tonnum til hrognatöku |
