Mikið annríki hefur verið á skrifstofu félagsins við skattaframtalsaðstoð sem félagið býður sínum félagsmönnum uppá. Þetta er fimmta árið sem félagið býður uppá slíka þjónustu og það fer ekki á milli mála að félagsmenn kunna gríðarlega vel að meta hana.
Skattaframtalsaðstoðin byrjaði 5. mars sl. og hefur nánast verið fullt í alla þá tíma sem hafa verið í boði. Hins vegar er laust í nokkra tíma í þessari viku og þeirri næstu og eru félagsmenn hvattir til að panta tíma fljótlega ef þeir hyggjast nýta sér þessa þjónustu.
