Samningafundur um nýjan kjarasamning fyrir starfsmenn Klafa var haldinn í gær. Ræddu samningsaðilar þær kröfur sem stéttarfélagið hefur lagt fram. Einnig var klárað að fara yfir þann samningstexta sem verður í nýjum kjarasamningi fyrir starfsmenn Klafa. Þeirri vinnu er nánast lokið. Eftir stendur að um verulegan ágreining er um einn fimm samningsatriði og ekki útlit á þessari stundu að aðilar nái saman hvað þau atriði varðar. Næsti fundur er á þriðjudaginn kemur og munu forsvarsmenn Klafa leggja fram heilstætt tilboð á þeim fundi. Ef það tilboð verður ekki viðunandi mun Verkalýðsfélag Akraness vísa deilunni til ríkissáttasemjara
