Verkalýðsfélag Akraness fundaði með trúnaðartengiliðum Íslenska járnblendifélagsins í dag. Lögðu tengiliðarnir fram þær kröfur sem þeir hafa tekið saman í fullu samráði við starfsmenn Íj. Voru trúnaðartengiliðirnir einhuga um þær kröfur sem teknar hafa verið saman, og verða lagðar fram á næsta samningafundi sem ríkissáttasemjari heldur. Ekki verður farið efnislega yfir þær kröfur sem starfsmenn vilja ná fram á þessu stigi málsins . Væntanlega verður næsti samningafundur hjá sáttasemjara á næsta föstudag. Fram kom hjá trúnaðartengiliðunum að mikil samstaða sé hjá starfsmönnum Íslenska járnblendifélagsins í þessari kjaradeilu við eigendur Íslenska járnblendifélagsins.
Það er mat Verkalýðsfélags Akraness að það sé þó nokkuð líklegt að það geti komið til vinnustöðvunar í þessari kjaradeilu. Það er alveg morgun ljóst að eigendur fyrirtækisins verða að koma til móts við þær kröfur sem trúnaðartengiliðir starfsmanna hafa tekið saman í samvinnu við starfsmenn ÍJ. Ef ekki er útlitið orðið verulega dökkt, og er þar vægt til orða tekið.
