Það er gríðarlega jákvætt að sjá þá miklu uppbyggingu og fjölgun starfa sem orðið hefur hjá HB Granda hér á Akranesi en algjör viðsnúningur hefur orðið á liðnum árum hvað það varðar. Fyrst eftir sameininguna árið 2004 dró töluvert úr starfseminni en nú á liðnum misserum hefur störfum fjölgað jafnt og þétt. Sem dæmi er núna unnið allan sólarhringinn í loðnufrystingunni. Einnig er unnið myrkranna á milli í frystihúsi fyrirtækisins sem og í loðnubræðslunni.
Það er einnig mjög jákvætt að sjá að HB Granda gengur gríðarlega vel. Skilaði fyrirtækið 5,6 milljörðum í hagnað á síðasta ári, ákveðið hefur verið að greiða til hluthafa 2,7 milljarða í arðgreiðslur og fyrirhuguð er frekari uppbygging fyrirtækisins hér á Akranesi. Það ber hinsvegar einn skugga á þetta allt saman og það lýtur að því að lagfæra verður kjör þeirra sem starfa í fiskvinnslunni. Ekki bara hjá HB Granda heldur allsstaðar. Það liggur algjörlega fyrir að fyrirtæki sem skilar svona gríðarlegum hagnaði geta greitt sínu fólki mun betri laun heldur en gert er í dag og það er hlutverk okkar í verkalýðshreyfingunni að sjá til þess að fiskvinnslufólk fái stærri hlutdeild í þessum mikla hagnaði sem sjávarútvegurinn er að skila.
Það græða allir á því að laun verkafólks verði hækkuð, til dæmis ríki og sveitarfélög en verslun og þjónusta myndu einnig fá hlutdeild í slíku. Það verður að gerast að laun fiskvinnslufólks og annars verkafólks taki verulegum hækkunum í komandi kjarasamningum enda er afkoma til dæmis í fiskvinnslunni svo ævintýraleg að annað eins hefur ekki sést á liðnum árum. Þetta eru algjörir smáaurar sem um er að ræða í þessu samhengi og sem dæmi þá starfa um 600 manns í fiskvinnslunni hjá HB Granda vítt og breitt um landið og ef kjör þessa fólks yrðu hækkuð um 50.000 kr. á mánuði myndi launakostnaður einungis hækka um 360 milljónir á ári fyrir utan launatengd gjöld. Já, takið eftir þessu, einungis 360 milljónir og það er sáralítið í ljósi 5,6 milljarða hagnaðar.
En aðalmálið er að fyrirtækinu gengur vel, störfum fjölgar og þegar búið verður að lagfæra kjör þessa fólks þá munu allir græða eins og áður sagði.
