Töluverð vinna hefur verið í frystihúsi HB Granda hér á Akranesi í sumar og var t.d unnið alla virka daga í júlí frá 6 að morgni til 18 að kveldi. Síðustu tvö sumur hefur frystihúsinu verið lokað í allt 6 vikur vegna sumarleyfa, en í ár var ekki nein sumarlokun.
Það að ekki skyldi vera sumarlokun hafði jákvæð áhrif fyrir skólakrakkana og fengu vel á annan tug unglinga vinnu í sumar hjá HB Granda. Þessi mikla vinna mun klárlega hjálpa unglingunum að stunda námið sitt í vetur og léttir á útgjöldum foreldra þeirra unglinga sem fengu vinnu hjá HB Granda í sumar, sem er afar jákvætt því víða hefur greiðslubyrði heimilanna aukist gríðarllega að undanförnu.
Starfsmenn HB Granda tjáðu formanni félagsins sem fór í vinnustaðaheimsókn í gær að verið væri að vinna Þorsk sem fluttur sé erlendis í flugi til Belgíu og Þýskalands. Það þarf ekkert að fara í grafgötur með það að þær gengisbreytingar sem orðið hafa á gjaldmiðlinum er klárlega að hjálpa fyrirtækjum sem selja sínar afurðir erlendis umtalsvert.
