Opinn kynningarfundur sem Verkalýðsfélag Akraness stóð fyrir um árangursríka aðferð til að takast á við lesblindu var haldinn miðvikudaginn 8. febrúar og tókst mjög vel í alla staði. Vel á þriðja tug manna sóttu fundinn og hlýddu á þær Erlu Olgeirsdóttur og Ástu Guðmundsdóttur Davis ráðgjafa fara yfir hvernig hægt er að hjálpa fólki sem er lesblint með Davis aðferðinni.
Fundarmönnum var boðið að skrá sig í greiningarviðtal þar sem kannað er hvort Davis aðferðin henti viðkomandi einstaklingi. Þó nokkrir skráðu sig í greiningarviðtal á fundinum. Í greiningarviðtali kemur í ljós hvort Davis aðferðin hentar viðkomandi. Ef Davis ráðgjafar telja að Davis aðferðin henti þá er hægt að fara í Davis leiðréttingu.
Þær Erla og Ásta fóru mjög vel yfir hvernig Davis leiðrétting fer fram. Hún felst í 30 klst. vinnu maður á mann, sem oftast er dreift yfir 5 daga í röð. Þá hefur viðkomandi fengið í hendurnar þau tæki sem hann þarf til að leiðrétta lesblinduna og finnur strax greinilega breytingu. Að 5 daga leiðréttingu lokinni þarf um 80 klukkustunda heimavinnu á 1-2 árum, til að tryggja þann árangur sem náðst hefur og leiðrétta lesblinduna til fulls.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness vill minna fullgilda félagsmenn á að starfmenntasjóður félagsins veitir styrk til þeirra sem fara í Davis leiðréttingu og einnig fyrir þá sem fara í greiningarviðtal hjá Davis ráðgjafa.
