Félagsmenn Verkalýðsfélags Akraness athugið!
Sameiginlegur aðalfundur Almennrar deildar, Stóriðjudeildar, Opinberrar deildar, Iðnsveinadeildar og Matvæladeildar verður haldinn á Gamla kaupfélaginu fimmtudaginn 25. febrúar kl. 18:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Staða kjaramála
3. Farið yfir starfsemi félagsins frá síðasta aðalfundi
4. Önnur mál
Boðið verður upp á súpu og brauð að afloknum fundi.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að fjölmenna!
Aðalstjórn Verkalýðsfélags Akraness
