Úrslit í kosningu um kjarasamning Íslenska járnbendifélagsins mun liggja fyrir rétt rúmlega tíu í fyrramálið. Talningin hefst kl 10:00 og talið verður í húsakynnum ríkissáttasemjara. Eins og áður hefur komið fram hér á heimasíðunni þá gengu kynningarfundirnir mjög vel fyrir sig. Virtust starfsmenn vera sæmilega sáttir við þann viðauka sem náðist tilviðbótar, kjarasamningum sem var undirritaður 1. febrúar. Þó vissulega hefðu starfsmenn viljað meira. Heildarkostnaðaráhrif samnings á samningstímanum er 21%
