Í dag kl. 16 kom til hafnar á Akranesi nýr Bjarni Ólafsson AK. Nýja skipið var keypt frá Noregi en Bjarni Ólafsson eldri var hinsvegar seldur til Rússlands. Sá eldri hafði reynst gríðarlega vel og í gegnum tíðina verið afar fengsæll.
Formaður Verkalýðsfélags Akraness var viðstaddur komu skipsins og færði eigendum og áhöfn blómvönd í tilefni af þessum merku tímamótum. Er það einlæg von félagsins að hinn nýkomni Bjarni Ólafsson AK verði jafn fengsæll og forveri hans.
