Nú rétt í þessu lauk talningu atkvæða í kosningu um kjarasamning Verkalýðsfélags Akraness og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var þann 3. febrúar síðastliðinn.
Á kjörskrá voru 219 félagsmenn. Greidd atkvæði voru 46 talsins svo kosningaþátttaka var 21%. Já sögðu 44. Nei sagði 1. Einn seðill var auður og enginn ógildur.
Samningurinn telst því samþykktur með 97,8% greiddra atkvæða sem er yfirgnæfandi meirihluti og mun samningurinn því strax taka gildi.
