Nú rétt í þessu lauk talningu atkvæða í kosningu starfsmanna Norðuráls um nýjan kjarasamning. Á kjörskrá voru 570 starfsmenn, og greiddu 444 þeirra atkvæði eða 77,9%.
- Já sögðu 311 eða 70%
- Nei sögðu 130 eða 29,3%
- Auð og ógild atkvæði voru 3
Það er því ljóst að sá kjarasamningur sem undirritaður var þann 17. mars síðastliðinn er samþykktur með miklum meirihluta atkvæða.
Þessi afgerandi kosning kemur formanni félagsins ekki á óvart, í ljósi þess að hér er um tímamótasamning að ræða enda aldrei verið gert áður að tengja launahækkanir verkafólks og iðnaðarmanna við hækkun launavísitölunnar.
