Nýr samningur við Ferðaþjónustuna Þórisstöðum

Nýr samningur við Ferðaþjónustuna Þórisstöðum

Nýr samningur við Ferðaþjónustuna Þórisstöðum

Nú hefur félagið gert nýjan samning við Ferðaþjónustuna Þórisstöðum í Svínadal, en félagsmenn hafa undanfarin ár notið ýmissa sérkjara þar í gegnum slíka samninga.

Samkvæmt nýja samningnum er félagsmönnum VLFA, mökum þeirra og börnum upp að 18 ára aldri heimill aðgangur að tjaldsvæðum í landi Þórisstaða í Svínadal auk veiði í Þórisstaðavatni og Eyrarvatni. Undanskipið er svæði KFUM, sunnanvert Eyrarvatn auk árstubbanna milli vatnanna. 

Gestir á tjaldsvæði geta auk þess spilað á golfvellinum án endurgjalds (ath. aðeins fyrir gesti tjaldsvæðis). Félagsmenn sem gista í bústöðum félagsins í Svínadal og gestir þeirra fá aðgang að golfvelli Þórisstaða gegn framvísun á leigusamningi, þá daga sem þeir gista í Bláskógum eða Efstaási.

Er það von félagsins að félagsmenn njóti góðs af þessum samningi og hafi það í huga að til að fá að njóta þessara kjara þurfa þeir að geta sýnt fram á félagsaðild sína með félagsskírteini sínu.

Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.