Orlofssjóður Verkalýðsfélags Akraness hefur fest kaup á nýlegu fjögurra herbergja heilsárshúsi við Berjabraut í Kjós. Um er að ræða 83,2 fermetra hús byggt árið 2005 sem stendur á fallegum útsýnisstað yfir Hvalfjörðinn í landi Hálsa í Kjós.
Húsið er á tveimur hæðum með yfirbyggðum inngangi. Í húsinu eru tvö svefnherbergi á neðri hæð, auk eldhúss, stofu og baðherbergis. Stofan er með mikilli lofthæð og úr stofu er stigi upp á risloft sem er eitt opið rými með útgengt í enda út á vestursvalir með fallegu útsýni.
Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið til útleigu í september 2011.
