Nýtt sumarhús

Nýtt sumarhús

Nýtt sumarhús

Verkalýðsfélag Akraness hefur nú fest kaup á bústað sem staðsettur er að Ásenda 9 í Húsafelli. Bústaðurinn er einstaklega vel skipulagður en hann var byggður árið 2009 og hefur verið í einkaeigu síðan þá.

Bústaðurinn er tæpir 82 fermetrar að stærð og í honum eru tvö svefnherbergi með góðum tvíbreiðum rúmum.  Auk þess fylgir lítið gestahús án salernis.  Umhverfi bústaðarins er mjög gróið og er því hægt að slaka á í ró og næði en um leið hafa aðgang að öllu því sem sumarhúsabyggðin í Húsafelli hefur upp á að bjóða. Eftirspurn félagsmanna eftir orlofshúsum er alltaf mikil og eru yfirleitt allir bústaðir félagsins bókaðir um helgar yfir vetrartímann en yfir sumartímann er eftirspurnin enn meiri og komast alltaf  færri að en vilja. Var því orðið tímabært að fjölga þeim orlofshúsum sem standa félagsmönnum til boða.   Næstu daga munum við opna fyrir bókanir og geta félagsmenn þá athugað hvaða tímabil eru laus með því að fara inn á félagavefinn eða hafa samband við skrifstofu félagsins í síma 4309900. 



Fleiri fréttir

Vel heppnað trúnaðarmannanámskeið hjá VLFA
Verkalýðsfélag
Akraness

Til skrifstofunnar geta félagsmenn leitað eftir upplýsingum og annarri aðstoð.

Kt. 680269-6889

Hafa samband

Afgreiðslutími

  • Mánudaga–fimmtudaga
    kl. 8:00–16:00
  • Föstudaga
    kl. 8:00–15:15

Utan afgreiðslutíma má ná í formann félagsins í síma 865 1294.