Vegna aukinna verkefna óskar Verkalýðsfélag Akraness eftir öflugum starfskrafti í 50% starf á skrifstofu félagsins. Vinnutími er frá kl. 12 til 16.
Í starfinu felst þjónusta við félagsmenn, símsvörun, iðgjaldaskráning og tilfallandi verkefni.
Leitað er að einstaklingi sem er jákvæður, lipur í mannlegum samskiptum, tekur frumkvæði og getur unnið sjálfstætt. Góð tölvu- og enskukunnátta er nauðsynleg. Viðkomandi þarf að geta hafið störf strax.
Um framtíðarstarf er að ræða á lifandi vinnustað.
Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur í símum 8651294 og 4309900.
Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 17. september. Umsóknum skal skilað á skrifstofu félagsins, Sunnubraut 13, 300 Akranes eða á netfangið
