Mótmælendur, trúðar, ungabörn, draugar, bændur og búalið eru á meðal þeirra furðuvera sem litið hafa inn á skrifstofu félagsins í dag, öskudag, og skemmt starfsfólki með söng og einstaka dansspori. Þeim hefur að sjálfsögðu verið vel launað fyrir vikið.
Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru á skrifstofunni í dag.
