Eins og venja er á öskudaginn er mikið líf og fjör í bænum í dag. Meðal annarra má sjá síamstvíbura, grímuklædda riddara og skrímsli af ýmsum stærðum og gerðum þræða götur bæjarins og syngja hástöfum fyrir sælgæti eða smádóti í pokann sinn.
Hingað á skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness hafa ýmsar furðuverur lagt leið sína síðan snemma í morgun og að sjálfsögðu verið vel tekið af starfsfólki skrifstofunnar. Gaman hefur verið að sjá hversu mikla vinnu krakkarnir hafa greinilega lagt í búningargerð og söngþjálfun og eru krökkunum færðar hinar bestu þakkir fyrir sönginn og skemmtunina.
