Það er skemmtilegur bragur á bæjarlífinu í dag þegar alls konar fígúrur hlaupa á milli húsa og syngja fyrir bæjarbúa og fá nammi að launum. Hér á Sunnubrautinni hefur verið líf og fjör í allan morgun og eftir því tekið að atriðin í ár eru sérstaklega vönduð og vel æfð. Það fer ekki á milli mála að krakkarnir eru upp til hópa metnaðarfull þegar kemur að búningum og söng og að sjálfsögðu er vel tekið á móti þeim þegar þau koma.
Búið er að setja myndir og myndbönd inn á Facebook-síðu Verkalýðsfélags Akraness, meðal annars er hægt að sjá eitt sérstaklega skemmtilegt atriði með því að smella hér.
