Það fer vart framhjá neinum að í dag er Öskudagur og bærinn fullur af búningaklæddum börnum sem syngja í búðum og á vinnustöðum gegn greiðslu í formi sælgætis. Að sjálfsögðu er vel tekið á móti söngglöðum börnum á skrifstofu VLFA, en mikið líf og fjör hefur verið á skrifstofunni í dag.
Myndir eru komnar inn á Facebook-síðu félagsins og í myndaalbúm hér á síðunni.
