Sumarleiga orlofshúsa VLFA hefur gengið mjög vel og eru allar vikur í orlofshúsum bókaðar út ágúst og nokkrir eru á biðlista. Ef um forföll er að ræða og enginn er á biðlista er vikan auglýst á Facebook-síðu félagsins og er félagsmönnum bent á að gerast fylgjendur félagsins á Facebook til að geta fylgst með gangi mála þar.
Á Félagavefnum er nú opið fyrir bókanir á orlofshúsum alveg til áramóta, en auðvitað er einnig hægt að hafa samband við skrifstofu félagsins til að ganga frá bókun. Félagsmönnum er bent á að bóka tímanlega, því þrátt fyrir fjölgun orlofshúsa hafa öll hús verið fullbókuð yfir vetrartímann undanfarin ár svo það borgar sig að bóka tímanlega.
