Nú er búið að opna fyrir umsóknir í orlofshúsin okkar í sumar.
Á sumrin er boðið upp á dvöl í orlofshúsum félagsins í Húsafelli, Svínadal, Hraunborgum, Ölfusborgum, Kjós og öllum þremur íbúðunum á Akureyri.
Alls á félagið 11 íbúðir/sumarhús. Við höfum einnig verið með á leigu sumaríbúð í Vestmannaeyjum.
Vegna fjölda ábendinga munu skiptidagar verða miðvikudagar.
Úthlutun fer þannig fram að allar umsóknir eru skráðar inn í tölvukerfi félagsins.
Kerfið raðar öllum umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli.
Ef punktar tveggja eru jafnir fær sá eldri úthlutað. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu.
Þeir sem ekki fá úthlutað í fyrri úthlutun lenda sjálfkrafa í endurúthlutun þar sem þeim vikum er úthlutað sem ekki voru greiddar á eindaga fyrri úthlutunar.
Fyrir endurúthlutun er heimilt að breyta umsóknum og leggja inn nýjar. Eftir eindaga endurúthlutunar verða lausar vikur auglýstar hér á heimasíðunni og hægt verður að bóka þær á Félagavefnum og á skrifstofu félagsins.
Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Hér eru helstu dagssetningarnar varðandi sumarið:
26. mars - Frestur til að skila inn umsóknum um orlofshús
29.mars - Fyrri úthlutun fer fram, allir umsækjendur fá svarbréf í pósti (einnig er hægt að sjá strax hvort bókun hafi myndast inni á Félagavefnum)
12. apríl - Eindagi fyrri úthlutunar, þeim vikum sem ekki eru greiddar á eindaga er úthlutað aftur
13.apríl - Endurúthlutun fer fram, þeir sem fá úthlutað fá það staðfest með bréfi
- Kl. 12:00 - Fyrstir koma, fyrstir fá! Þeir sem fyrstir koma geta bókað lausar vikur, líka á Félagavefnum (athugið að eftir eindaga endurúthlutunar getur lausum vikum fjölgað)
21.apríl - Eindagi endurúthlutunar, ógreiddar vikur verða lausar til bókunar á Félagavefnum.
Hér er hægt að skrá sig inn á félagavefinn
