Umsóknareyðublöð vegna styrks úr vinnudeilusjóði vegna launataps í verkfalli eru nú aðgengileg á heimasíðu VLFA undir Eyðublöð. Hægt er að senda útfylltar umsóknir í tölvupósti á
Með umsókninni þurfa að fylgja gögn sem staðfesta starfshlutfall og að starfsmaður hafi átt að vinna á verkfallsdegi en lagt niður störf. Þónokkur fyrirtæki hafa nú þegar sent slíka staðfestingu fyrir alla sína starfsmenn í einu lagi til skrifstofu félagsins og þegar um er að ræða vinnustaði þar sem margir hafa lagt niður störf, þá er það líklega þægilegast.
Styrkir vegna launataps í verkfalli verða greiddir út um mánaðarmótin og sem betur fer hefur slíkt ekki gerst í áraraðir. Verkfallssjóður Verkalýðsfélags Akraness er sterkur og mun vel geta staðið undir greiðslum til félagsmanna komi til langtímaverkfalls.
