Skrifstofa Verkalýðsfélags Akraness vill minna félagsmenn á opinn félagsfund sem haldinn verður í kvöld á Gamla Kaupfélaginu. Fundurinn hefst kl. 19:30 og er dagskrá á þessa leið:
1. Kynning á afsláttarkjörum til félagsmanna VLFA
2. Stefnumótun í kröfugerð vegna komandi kjarasamninga
3. Önnur mál
Stjórn félagsins hvetur alla félagsmenn til að mæta og taka virkan þátt í mótun kröfugerðar vegna komandi kjarasamninga, enda eru allir kjarasamningar félagsins lausir á næstu mánuðum. Kaffiveitingar verða í boði.
