Verkalýðsfélag Akraness boðar til opins fundar vegna alvarlegrar stöðu kjaraviðræðna. Fundurinn verður haldinn í Bíóhöllinni á Akranesi á morgun, fimmtudaginn 17. febrúar kl. 20.
Á fundinum mun formaður félagsins gera grein fyrir stöðu kjarasamninga og verða fyrirspurnir fundargesta leyfðar. Kaffiveitingar verða í boði að loknum fundinum. Verkalýðsfélag Akraness hvetur alla launþega á hinum almenna vinnumarkaði til að fjölmenna á fundinn og ekki síst þá sem starfa hjá útflutningsfyrirtækjum eins og Elkem Ísland, Klafa ehf, Norðuráli og Síldarbræðslunni. Oft hefur verið þörf á samstöðu en nú er nauðsyn!
