Opinn kynningarfundur um lesblindu verður haldinn miðvikudaginn 8. febrúar kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn að Kirkjubraut 40 3. hæð. Fundur er öllum opinn og skorar stjórn Verkalýðsfélagsins Akraness á sem flesta að mæta og kynna sér hvaða úrræði eru í boði. Það eru Davis ráðgjafarnir Erla S. Olgeirsdóttir og Ásta Valdís Guðmundsdóttir sem munu kynna aðferðir til að takast á við lesblindu og einnig munu þær svara spurningum frá fundarmönnum.
Verkalýðsfélag Akraness auglýsir kynningarfund
Áttu í erfiðleikum með lestur, skrift eða stærðfræði?
Opinn kynningarfundur um árangursríka aðferð til
að takast á viðlesblindu
verður haldinn
Miðvikudaginn 8. febrúar kl. 20 í sal félagsins að Kirkjubraut 40.
Erla S. Olgeirsdóttir og Ásta Valdís Guðmundsdóttir, Davis ráðgjafar, munu á fundinum kynna þessar aðferðir og svara spurningum. Þær hafa báðar töluverða reynslu við að þjálfa lesblinda einstaklinga á öllum aldri.
Hægt er að bóka greiningarviðtal að fundi loknum.
Í greiningarviðtölum er fundið út hvort Davis aðferðin henti einstaklingnum.
