Opnunartími skrifstofu Verkalýðsfélags Akraness yfir jól og áramót verður með eftirfarandi hætti:
23. desember Þorláksmessa - Opið kl. 8:00-12:00
24. desember Aðfangadagur - Lokað
25. desember Jóladagur - Lokað
26. desember Annar í jólum - Lokað
29. desember - Opið 8:00-16:00
30. desember - Opið 8:00-16:00
31. desember Gamlársdagur - Lokað
1. janúar Nýársdagur - Lokað
2. janúar - Lokað vegna starfsdags
Þeir félagsmenn sem eiga bókaða bústaði þurfa að sækja samninga og annað á ofangreindum opnunartíma. Þeir sem eiga bókaðan bústað yfir jólin þurfa því að koma í síðasta lagi fyrir hádegi 23. desember og þeir sem eiga bókað um áramót í síðasta lagi fyrir kl. 16 þriðjudaginn 30. desember.
Styrkir verða greiddir út þann 30. desember og þurfa gögn í tengslum við þá að hafa borist fyrir kl. 16 mánudaginn 29. desember.
