Kynningarfundirnir héldu áfram í morgun á nýgerðum kjarasamningi við Norðurál. Það voru iðnaðarmenn, starfsmenn í Kerfóðrun, skautsmiðju og skrifstofufólk sem fengu sína kynningu í morgun og stóð kynningin til hádegis. Það er ljóst að það eru nokkuð skiptar skoðanir með samninginn og er það sérstaklega vaktakerfið sem starfsmenn eru ekki á eitt sáttir með. Hvað varðar launaliðina í kjarasamningum þá virðast starfsmenn almennt vera nokkuð sáttir með þann þátt samningsins. Hagfræðingur ASÍ hefur látið það koma skýrt fram á öllum kynningarfundunum að þessi kjarasamningur sé einn sá besti sem gerður hefur verið í þessari samningalotu. Vissulega hefði samninganefnd stéttarfélaganna viljað ná lengra í þessum áfanga en lengra var ekki komist og miðað við aðstæður er Verkalýðsfélag Akraness ánægt með samninginn. Eitt lítið dæmi sem náðist í þessum kjarasamningi er hækkun á orlofs og desemberuppbótum. Fyrir samning voru þær. 40.458 kr. eða samtals 80.916 kr. Eftir kjarasamning verða þær 96.704 kr. eða samtals 193.404 kr. sem er hækkun upp á 112.488 kr við undirskrift samningsins, hækkun sem nemur 139%
