Á Félagavefnum er nú opið fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum félagsins sumarið 2018 (Veljið Orlofshús-umsókn til að leggja inn umsókn). Umsóknareyðublöð eru einnig á leiðinni til félagsmanna í pósti. Umsóknarfrestur er til 9. apríl og fer úthlutun fram daginn eftir. Þeir sem ætla að póstleggja umsóknir ættu að hafa það í huga að hafi umsókn ekki borist félaginu 9. apríl er ekki hægt að skrá hana fyrir úthlutun.
Auk orlofshúsa sem félagið á í Húsafelli, Svínadal, Kjós, Ölfusborgum, Hraunborgum og á Akureyri verður boðið upp á dvöl í húsi í Vestmannaeyjum eins og síðustu ár. Því til viðbótar mun VLFA hafa húsaskipti við Framsýn stéttarfélag og geta félagsmenn VLFA dvalið í orlofshúsi á Illugastöðum í Fnjóskadal tímabilið 15. júní til 24. ágúst. Í staðinn geta félagsmenn Framsýnar dvalið í Bláskógum í Svínadal. Einnig hefur félagið tekið eitt hús á leigu í Flókalundi í 6 vikur í sumar.
Úthlutun fer þannig fram að allar umsóknir eru skráðar inn í tölvukerfi félagsins. Við úthlutun raðar kerfið öllum umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli. Ef punktar tveggja eru jafnir fær sá úthlutað sem fyrr sótti um. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu. Þeir félagsmenn sem fá úthlutað geta strax séð það á Félagavefnum, en þar mun myndast bókun sem hægt er að greiða með greiðslukorti. Greiða þarf fyrir úthlutaðar vikur í síðasta lagi 24. apríl. Hafi vika ekki verið greidd fyrir þann tíma er litið svo á að félagsmaðurinn ætli ekki að nýta úthlutaða viku og vikunni er úthlutað aftur.
Þeir sem ekki fá úthlutað í fyrri úthlutun lenda sjálfkrafa í endurúthlutun þar sem þeim vikum er úthlutað sem ekki voru greiddar á eindaga fyrri úthlutunar. Leyfilegt er að breyta umsóknum og leggja inn nýjar fyrir endurúthlutun.
Helstu dagssetningar 2018:
9. apríl - Frestur til að skila inn umsóknum um orlofshús.
10. apríl - Fyrri úthlutun fer fram, allir umsækjendur fá svarbréf í pósti (einnig er hægt að sjá strax hvort bókun hafi myndast inni á Félagavefnum).
24. apríl - Eindagi fyrri úthlutunar, þeim vikum sem ekki eru greiddar á eindaga er úthlutað aftur.
2. maí - Endurúthlutun fer fram, þeir sem fá úthlutað fá það staðfest með bréfi.
2. maí - Kl. 12:00 - Fyrstir koma, fyrstir fá! Þeir sem fyrstir koma geta bókað lausar vikur, líka á Félagavefnum (athugið að eftir eindaga endurúthlutunar getur lausum vikum fjölgað).
11. maí - Eindagi endurúthlutunar, ógreiddar vikur verða lausar til bókunar á Félagavefnum.
